|
Síður í ,,dvala" hjá fjölskyldunni, vinum og vandamönnum
|
08.07.2008 07:28:47 / Berglind
Hæhæ elsku allir,
Við vitum vel að það er orðið frekar langt síðan að við létum í okkur heyra og erum við ekki að lofa mikilli bót á því hérna eitthvað frekar, en við erum bara búin að vera á fullu í vinnunni, í náminu og svo undirbúningurinn í veislunna stóru í ágúst. Talandi um hana þá er farið að styttast allskyggilega í hana og þar af leiðandi höfum við orðið að ósk nokkra veislugesta okkar um að setja einhvern svona smá hugmyndaróskalista en við birtum hann á annari heimasíðu, þ.e.a.s. www.123.is/berglindoggusti
Til vina, ættinga og annara velunnara okkar sem ekki fengu boðskort, þá því miður var það bæði hausverkur og púsluspil að koma gestalistanum saman. En vegna takmörkunar á veislusalnum, uppgvötun okkar um hvað nánast fjölskyldan hjá okkur báðum er svakalega stór ásamt nokkrum öðrum ástæðum, þá urðum við því miður að skera niður gestafjöldann. En þennan hausverk kannast eflaust flestir við sem hafa staðið í þessum undirbúningi, þótt viljinn sé fyrir hendi og löngun til að bjóða öllum.
Jæja þá er þessu fargi létt af okkur í bili, og námið kallar á Berglindi...
Risa knús og kossar frá okkur í DK 
»
08.04.2008 06:38:05 / Berglind
Hæhæ,
Oft þegar maður er að læra þarf maður aðeins að brjóta hlutina upp og taka smá pásu, og í þetta skiptið fór ég og skoðaði hvernig strumpur ég væri. Niðurstaðan er:

Ef þið hafið áhuga að kíkja á hverngi strumpar þið eruð þá er slóðin: http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm
Jæja bækurnar farnar að heimta athygli aftur....
Knús frá Áló, Berglind.
»
15.01.2008 12:52:13 / Berglind
Hæhæ allir.... Þar sem Berglind á jú víst afmæli í dag, þá ætlar hún að hafa kaffi á könnunni og jafnvel að baka eins og eina köku fyrir þá sem langar að kíkja inn... en þetta verður ekkert formlegt núna. Planið fyrir formlega veislu, eins og einn vinur okkar krafðist þá erum við að hugsa um föstudaginn 31. janúar eða laugardaginn 1. febrúar, með þeim fyrirvara að Gústi verði ekki farinn til Írlands á vegum vinnunar sinnar þá. Frekari skilaboð um veisluna koma síðar, þegar Berglind kemur heim aftur frá Íslandi. Knús og kossar frá Áló 
»
15.01.2008 12:42:59 / Berglind
Hæhæ allir saman Jæja humm... hvað segið þið... er þrettándinn ekki ennþá ókominn? Eee... úbbs...L Annars þá nei nei, það fór ekkert frámhjá okkur enda er jú auðvita til dagatal hérna í Danaveldinu líkt og annarsstaðar. En seinkunnin á einhverjum skrifum hérna er tvískipt; Fyrir það fyrsta þá klúðraði Berglind eitthvað skjalinu sem hún geymdi það sem búið var að skrifa um okkur, í öðru lagi þá er búið að vera mikið að gera hjá okkur síðan rétt eftir áramótin, og í raun mun meira en við kannski áætluðum fyrir. En útkoman er sú að á nokkrum dögum náðum að fresta ákvarðanatöku okkar um framhaldið hjá okkur um hálft ár. Það er að segja þá ákvörðun hvað við eigum að gera þegar Berglind er búin með námið hérna, hvort við flytjum heim eða hvað við gerum. Málið er að þar sem Berglindi gekk svo rosalega vel á Bifröst þá hefur hún brennandi áhuga á að halda þar áfram á vorönninni. Eftir að búið var að fara í fjárlög heimilisins og skoða möguleikan á að borga enn eina önn á Bifröst án þess að það hefði áhrif á önnur mikilvæg plön hjá okkur, þá ætluðum við að athuga hvort hún gæti ekki skrifað mastersritgerðina sína á ári, í staðinn fyrir á hálfu ári eins og venja á að vera, bæði til að halda íbúðinni hérna úti og námsstyrknum í staðinn fyrir að fresta bara algjörlega önninni. En málið var víst ekki svo einfalt hérna þar sem nýjar reglugerðir eru um skrif á slíkum ritgerðum, þær mega nefnilega núna bara taka hálft ár en ekki óendalega lengi eins og áður. Þannig að samningarviðræður hófust við skólann hérna úti og var það algjörlega á þeim samningarviðræðum sem það ákvaðst hvað hægt væri að gera. En þar sem þessar reglur eru svo nýjar þá fann yfirkennarinn hjá Berglindi smá smugu í kerfinu fyrir hana og jú, hún fékk frestað skilunum á ritgerðinni hjá sér þanngað til í miðjan október. Svo nú er hún í algjöri merkingu að fara að taka 2 mastersgráður í einu, þ.e.a.s. hún mun taka vorönnina á Bifröst og skrifa ritgerðina á sama tíma fyrir háskólan hérna í Álaborg. Svo júmm... það er því gefið að ekki verður hægt að lofa mikilli frammistöð hérna enda er jú eins og flest ykkar vita af undirbúningurinn fyrir 08.08.08 líka í fullum gangi. Brúðkaupið: Já fyrir ykkur sem ekki hafið frétt af því, sem eru eflaust ekki margir, þá ákváðum við hjónaleysin að láta pússa okkur saman 8. ágúst næst komandi, og mun athöfnin vera í kirkjunni á Borg á Mýrum þar sem aðeins nánasta fjölskylda okkar, þ.e.a.s. foreldrar, systkyni og makar, ömmur og systkyni foreldra okkar verða viðstödd athöfnina. En eitthvað verður aðeins fleira um fólkið í veislunni hjá okkur eftir athöfnina þótt svo að því miður verður miðað við 18 ára aldur veislugesta. En svona annars upptalning hjá okkur síðan síðast: áramótapistillinn af restina af árinu...
Á Íslandi í haust: Þá fór Gústi í nokkrar veiðiferðir bæði með pabba sínum og síðar líka með vinum sínum og náði hann að skjóta í jólamatinn fyrir foreldra sína J en ekki var mikið um fugla þar sem þeir voru.Við skruppum norður, Gústi reyndar bara eina helgi enda veiðiferðatímabilið í fullum gangi hjá honum, en við áttum yndislegan tíma í ,,sumarbústaðinum” í Vaglaskógi. En við kíktum líka á samgönguferðasafnið rétt fyrir utan Húsavík og gerðumst enn og aftur virkilegir ferðamenn á Íslandi við að fara í hvalaskoðunarferð. En báturinn var fullur með tæplega 100 manns en við tvö þau einu sem vorum íslendingar á bátnum fyrir utan áhöfnina. En hvað hvali varðar þá sáum við ekki nema eina hrefnu á þessari 3 tíma siglingu L En samt bara gaman að hafa gert þetta J Aftur komin til DK: Við komum aftur heim um miðjan september við hálf undarlega tilfinningu þar sem tvær vinafölskyldur okkar fluttu skyndilega heima aftur til Íslands vegna fjölskylduaðstæðna L en svona er lífið... og þá sérstaklega nemendalífið hérna... fólk kemur og fer... Eftir að við komum heim þá fór Gústi á fullu að vinna líkt og venjulega, en hann fékk skemmtilega og óvænta mótttöku á vinnustaðnum sínum fyrsta daginn eftir sumarfríið. Málið er að hann fékk svokölluð starfsmannaverðlaun frá FLSmidth sem eru afhent einu sinni á ári fyrir frábært vinnuframlag sem hefur skilað sér afburðarvel fyrir fyrirtækið J Svo það eru ekki bara orðinn hans eða okkar að honum gangi vel í vinnnunni, hann fékk það staðfest frá fyrirtækinu að hann er greinilega duglegur í vinnunni Skólinn hjá Berglindi var þegar byrjaður þegar við komum heim aftur en fjarnámið á Bifröst var svona smá dæmi að venja sig við. Þá sérstaklega að þurfa ekki að taka sig til, fara út og mæta svo í kennslustund með öðrum nemendum klukkan 8 eða 9, heldur að fara fram fá sér morgunmat og labba svo inn í litla herbergið hjá okkur og setjast við skrifborðið og byrja að læra. Það tók smá tíma að átta sig á sjálfsaga og skipulagningarhæfni til að koma þessu í fasta rútinu en þetta gekk síðan bara mjög vel alltaf hægt að venja sig við breyttar aðstæður. Námsferðin til USA: Um miðjan október fór Berglind með skólanum í námsferðina til Bandaríkjanna. En ástæðan fyrir að hún gat farið í þessa dýru ferð var að hún á voðalega gott fólk að, bæði vinkonu og systur En vinkona hennar hún Svanhildur og maðurinn hennar Þór búa einmitt í New York og buðu þau Berglindi að vera hjá sér þrátt fyrir að Svanhildur var svotil komin á steypirinn og að þær stöllur hafi ekki hist í fjölda ára. Takk kærlega fyrir gistinguna sætu foreldrar hennar Emblu litlu sætu prinsessu Berglind reyndi að láta lítið fyrir sér fara og gat hún það stórlega með hjálp Unnur systur sinnar. En Unnur var nefnilega líka í ferðinni, enda er hún komin í sama nám og Berglind J á Bifröst. Unnur var á hótelinu sem flestir í bekknum voru á og endaði það með því að Berglind var líka mest megnis af tímanum hjá henni, svo elsku Unnur takk kærlega fyrir það og bæði Unnur og Svanhildur og Þór innilega takk fyrir skemmtilegan og minnistæðan tíma í fyrstu Bandaríkjaferðinni minni Eftir heimferðina frá USA stoppaði Berglind á Íslandi til að taka próf og vinnuhelgi á Bifröst. Síðan þegar hún kom heim aftur til DK kom pabbi hennar og Linda Björk systir hennar með út og voru í viku. Það var voða gaman og Gústi tók sér frí í vinnunni, þar sem við ferðuðumst mikið. Kíktum á kalknámu með leðurblökum í, keyrðum hellingu um vestur Jótland, skruppum í verslunarferð til Þýskalands og svo kom Óli bróðir hennar Berglindar og María konan hans í heimsókn frá Svíþjóð. Sem var alveg meiriháttar enda höfðu þau ekki sérst í langan tíma sem og pabbi hennar og Linda höfðu ekki heldur. Eftir þennan tíma komst heimilislífið í vana gang hérna aftur hjá okkur báðum og prófin sem Berglind tók í desember tók hún í gengum tölvuna. En útkoman var mjög jákvæð eins og áður sagði hér að ofan. Hátíðarnar: Jólin voru notaleg að vanda, en í ár keyptum við risa jólatré og bara allt voða fínt. Borðuðum með vinum okkar hangikjöt á jóladag og um áramótin vorum við líka hjá vinum og elduðum, skutum upp og höfðum það voða gaman saman Jæja ætli við látum þetta ekki duga í bili enda nóg að gera í smá bakstri og pökkun fyrir Íslandsferðina hennar Berglindar á morgun, vegna vinnuhelgarinnar núna um helgina á Bifröst. Knúsar og kossar héðan frá okkur í DK  B&G
»
31.12.2007 15:49:33 / Berglind
Elsku vinir og vandamenn  Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla  Risa nýjársknúsar frá okkur í Áló, Berglind og Gústi. P.s. Áramótapistilinn er í vinnslu... þ.e.a.s. létt upptalning á því sem við gerðum á árinu sem er að líða frá því að við skrifuðum síðast Kemur inn í síðasta lagi á þrettándanum 
»
13.08.2007 19:57:56 / Berglind
Hæhæ...
Já eins og sjá má hefur ritarinn hérna verið í
,,sumarfrí” frá skriftum... enda mikið að gera bæði núna og síðan
síðast...
En við fengum gest til okkar í þrjár vikur, hann
Elvar Birgir litla frænda Berglindar. Sem var kærkominn heimsókn og
mikið brallað af skemmtilegum hlutum, eins og fara í göngutúra í
listigarðinum, farið í froskaleiðangur, tekinn langur dagur í
dýragarðinum, farið í Sommerland, farið að versla skólafatnað,
slappað af og svona. Sem var hið besta mál, enda dró það hugann hjá
Berglindi frá leiðinlegri atviki sem átti sér stað deginum eftir
síðasta pistill. En í stuttu málið sagt þá var hún lögð inn á
spítala eftir að það var sett lyf út í glasið hennar, en sem betur
fer gerðist ekki neitt. Hún ætlar að skrifa um þetta við tækifæri,
þar sem hún vonar að það geti verið öðrum víti til varnaðar. En
þanngað til þá, passiði ykkur og drykkina ykkar, opnið þið allt
sjálf! Ekki fá glas hjá kunningjum, þótt þú sért í
einkasamkvæmi!
Enn alla vegna mitt í þessari heimsókn hans
Elvars Birgirs var hin árlega Hróaskelda og fór Gústi ásamt gömlu
hróaskeldufélögunum sínum þeim Eyfa, Hjölla og Flemming ásamt
nokkrum nýgræðlingum eins og þeim Hauki, Mæju, Fríðu (systir
Mæju&Höllu) og Didda. En eins og menn/konur muna eflaust þá var
þetta annsi blaut skemmtun og dugðu þó flestir allan tímann við
eitthvað puð við viðbúnaðinn og að komast leiðar sinnar. En allt er
gott sem endar vel og þessir Hróaskeldufarar bera hátíðinni vel,
miða við aðstæður. Enda voru þau líka mjög heppin með tjaldsvæði,
miða við marga aðra á
staðnum.
Síðan um miðjan júlí fór Berglind til Íslands með
Elvar Birgir, enda námið á Bifröst að hefjast. En Gústi var og er
enn heima í Dk að vinna. Af náminu hjá Berglindi þá gengur það bara
vel, þrátt fyrir mikinn lærdóm (eins og sjá má hér... bara verið að
blogga... en það mætti frekar kallast kærkomin pása frá lestri...
ekki bara slugsa háttur). Tvö af þremur og hálfu námskeiði, á
þessari summarönn, er lokið og hefur verið mikið um verkefnaskil og
slíkt. Því hafa mikilvægir atburðir í lífi vina okkar, kærkomnar og
aðrar heimsóknir, setið á haganum L
sem Berglind þykir mjög mikill miður að missa af. Eins og elsku
Maja, Halla og fjölskyldur, Gyða og Ævar, Litla ljónafjölskyldan í
Kvíaholti og fleiri hafa komist að raun að
L
. En svona er lífið, maður verður að forgangsraða sumum hlutum og
því ver og miður verður maður að vera stundum sjálfselskur og setja
þarfir sínar í fyrsta sæti, eins og skila mikilvægum verkefnum í
skólanum, taka próf og
slíkt.
Á meðan þessari Íslandsdvöl stendur, hefur
Gústi ekki verið mikið einn, enda góðir vinir og einnig
vinnufélagar sem hafa séð honum fyrir afþreyingum líkt og bjóða
honum í grillmat og bjór. Farið með hann í bíó. Eldað helling af
fisk ofl. J
En hann mun síðan koma til Íslands þann 25. ágúst, þar sem
sumarönninni hjá Berglindi lýkur þann 23. ágúst, og munum við
skötuhjú bralla eitthvað skemmtilegt þar til að Berglind byrjar á
haustönninni sinni. En verkefnin liggja líka fyrir hjá Gústa hér á
landi, en hann er að skipuleggja í óða önn að fara á nokkra daga
gæsaskytterí með pabba sínum ásamt því að hjálpa honum gamla að
hefjast handa í hlöðunni fyrir hlöðuballið/böllin næsta
sumar J
. En síðan munum við fljúga aftur heim til DK þann 15. september
enda haustnámið hjá Berglindi að mestu leytið í fjarnámi, ef burt
er séð frá vinnuhelgunum þann 7 & 8. september og 26 & 27
október og námsferðinni til New York þann 13.-19.
október.
Talandi um þá námsferð þá hljómar hún alveg
rosalega spennandi enda mun verður farið í heimsókn í nokkur
stórfyrirtæki sem tengjast náminu hjá Berglindi á Bifröst, ásamt
því að skólinn er búinn að skipuleggja einn af fyrirlestrunum á
haustönninni í einum háskólanna þar ytra, enda kannski ekki mikil
furða þar sem svo mikið af kennaraliðinu á brautinni hennar eru
annað hvort prófessora eða fólk úr viðskiptalífinu í NY. Eini
gallinn á þessari ferð er hár kostnaður, þar sem verið er að tala
um hótel í frekar dýrari kantinum fyrir suma en aðra. Ferðin er
heldur ekkert styrkt af neinum né einhver söfnun í gangi, en það er
mikill munur á fjárhag nemenda, þar sem það rokkar frá fáum sem eru
bara á námslánum/styrkum og alveg upp í að sumt fólk sé með alveg
uppundir eina millu (eða jafnvel fleiri) í mánaðarlaun. Þetta er
reyndar heldur ekki skylduferð, en skólinn er að sjá til þess að
við förum, með því að skipuleggja allt í kringum þetta en enn er
ekki komið út hvað við eigum að gera ef við förum ekki í ferðina.
Sennilega verður það nokkur verkefni sem við verðum að skila í
staðinn... Enn jæja við sjáum hvað setur í þessum málum, það er
alls ekki ódýrt að velja sér dýrasta skólann á landinu og svo halda
að svona námsferð hljóti að vera reiknuð með í þessari rúmlegu
hálfu millu sem maður borgar í skólagjöld fram að
jólum.
Jæja nóg um þetta allt saman og já... púff...
lesefnið fyrir morgundaginn er farið að minna óþægilega mikið á sig
núna L
púff... eins gott að halda áfram.
Knús og kossar frá bæði danaveldinu og úr
Borgarfirðinum, Berglind og
Gústi.
»
22.06.2007 13:09:39 / Berglind
Hæhæ allir,
Allt gott að frétta héðan. Berglind komin í
sumarfrí, en hún var í prófi í gær og gekk bara vel, útkoman úr
annarverkefninu var eitt stykki 9 Svo nú er það bara hjá henni
að njóta sumarsins hér í DK áður en hún byrja á Bifröst þann 23.
júlí, en hún mun koma til landsins þann 18. júlí.
Gústi mun reyndar ekki taka beint mikið
sumarfrí, fyrir utan það að fara á Hróaskellduhátíðina með Eyfa
& Maju, Hauk, Didda, Hjölla víking ásamt Flemming og co. Og
síðan mun hann væntanlega koma til Íslands í endan á ágúst,
líkt og við skrifuðum í síðustu færslu.
Annars þá erum við ekki ennþá að leita að
einhverju til að koma til DK, þar sem litli frændi hennar
Berglindar mun koma með fylgd til Köben í næstu viku, og munum við
taka á móti honum þar. Eða réttara sagt Berglind, þar sem Gústi er
að fara á námskeið í Köben á þriðjudag og miðvikudag ætlar Berglind
að fara með til að sækja litla gaur 
Látum þetta duga í bili... enda ritarinn kominn
í ,,sumarfrí" frá mikilli viðveru við tölvuna 
Þanngað til næst,
Knús og kossar frá okkur í Áló 
B&G.
»
17.06.2007 19:30:42 / Berglind
Hæhæ allir...
Gleðilegan þjóðhátíðardag! Í tilefni dagsins var
að sjálfsögðu íslenskur matur á borðum hér. Ekkert meira né minna
en reykt ýsa, með nýjum kartöflum, Ora grænum baunum og uppstúf. Og
þótt undarlegt megi kannski virðast borðuðum við bæði með
bestu lyst okkur fullsödd, en þeir sem þekkja matarvenjur
Berglindar muna kannski að fiskur er víst ekki
neitt beint uppáhald hjá henni.
Humm... annars af okkur að frétta þá
er Berglind að undirbúa sig fyrir prófið sitt á
fimmtudaginn, þ.e.a.s. þann 21. júní, og Gústi er í
sæluvímu yfir að hafa keypt sér smá skotvopnapakka, enda fékk hann
hluta af því í síðbúna afmælisgjöf frá sínum gömlu.
Annars þá er Bifröst enn á pallborðinu hjá
Berglindi, þar sem hún fékk bæði inngöngu í skólann
og háskólinn hérna í DK samþykti þetta allt saman.
En Berglind var ekki svo heppin að fá skólastyrkinn þannig að
nú höfum við verið að brjóta upp sparibaukanna okkar og telja...
eins og Rósa vinkona Berglindar var að tala um að
hún ætlaði að gera fyrir hana En með hjálp góðra aðila
gengur þetta allt saman upp með þennan kostnað. Þannig að
Berglind mun koma heim til Íslands eitthvað um miðjan
júlí til að hefja strempnar 6 vikur á Bifröst. En í endan
á ágúst mun Gústi koma til landsins, þar sem Berglind mun
hafa pínku frí á milli sumarannarinnar og haustannarinnar. En
við munum síðan fljúga út saman í eftir mánaðarmótin
ágúst/sept., eða þ.e.a.s. eftir að vinnuhelgin á Bifröst er
lokið hjá Berglindi. En fyrir þá sem ekki muna er haustönnin hjá
henni í fjarnámi.
Eitt enn... er einhver ykkar annað hvort að koma
til Danmerkur, helst líka Álaborgar, eða eigið von á gestum hingað
út í seinni hluta júní mánaðar sem væru kannski til í að taka einn
yngri farþega með sér fyrir okkur?
Þanngað til næst,
knús og kossar héðan úr rigningunni í Áló,
B&G.
P.s. Þið öll sem við þekkjum sem eruð búin að
vera eiga afmæli síðustu daga, innilega til hamingju
með aldurinn ykkar
»
21.05.2007 11:29:11 / Berglind
Hæhæ...
Já þar er ekkert nýtt að það séu endalausar
annir á þessu heimili. Berglind er á fullu, að reyna í sameiningu
við hópinn sinn í skólanum að púsla þessu blessaða annarverkefni
saman ásamt því að þurfa að hafa áhyggjur af næstkomandi önn í
skólanum, sem og Gústi er alltaf í vinnunni og er á leiðinn í
verklegahluta skotveiðileyfisins við lok þessara viku.
Já það er ekki nóg hjá Berglindi að huga bara að
einni önn í einu... en málið er að skólinn hjá henni setur kröfur
um að næsta önn verði annað hvort tekin í erlendum háskóla eða í
starfsþjálfun. Svo hún er á fullu að reyna að gera eitthvað í
málunum, hún var reyndar búin að finna einhver fyrirtæki til að
sækja um hjá til að fara í þjálfun en vandamálin við þau eru að þau
verkefni sem henni býðst er ekki alveg að hennar skapi, þ.e.a.s.
ekki það sem henni langar til að sérhæfa sig í og þá má spyrja sig
hver er þá tilgangurinn í að sækja um starfsþjálfun
í óáhugavert starf? Það er nefnilega endalaus tilboð um að vinna að
markaðsrannsóknum, en ekki starfsmanna- og fjárfestingarstjórnun
sem eru meira að Berglindar skapi.
Hún var nú reyndar búin að skoða einhverja skóla í haust en leist
ekkert á það sem hún skoðaði, en fyrir algjöra tilviljun sá hún
auglýsingu frá Bifröst er hún skellti sér heim fyrr í maí mánuðinum
og sá að þeir væru að bjóða skemmtilega lausn á mastersnáminu. Hún
skoðaði málið betur og jámm... sótti um að taka þessa næstu önn þar
sem er víst hið minnsta mál. En bara stóri hængurinn á því að fara
þangað eru jú skólagjöldin þar, jámm... ekki nema bara hálf milljón
fyrir þessa önn... og sitjum við því hérna heima núna nánast með
vasareiknanna uppi á lofti til að finna lausn á þessu, ef heppnin
verður ekki með Berglindi að fá ákveðinn skólastyrk fyrir þessu
eins og hún er búin að sækja um.
Annars var ferð Berglindar til Íslands mjög vel
heppnuð í alla staði, þrátt fyrir mjög lítinn tíma og jú fyrir utan
þann hæng að geta ekki hitt allt fólkið sitt, eins og Þórdísi Kötlu
og co. og fleiri...
En hún Rósa æskuvinkona Berglindar var að gifta
sig og miða við upplifun Berglindar af brúðkaupinu þá hefði hún
aldrei fyrirgefið sjálfri sér að hafa misst af þessu. Þetta var í
alla staði hið fullkonma brúðkaup ...svo svona einu sinni enn
elsku Rósa og Hlynur innilega til hamingju með hvort annað og
Gísli Máni með foreldrana þína 

Knús og kram frá okkur í Áló til ykkar allra

Ps. ein hérna mynd í lokin... þar sem Rósa fékk
Hlyn til að skipta við Berglindi um hlutverk, þ.e.a.s skipti á
fyrirsætustörfunum og fara í ljósmyndarahlutverkið...

»
19.04.2007 08:21:49 / Berglind
Hæhæ...
Okkur langar bara ad bjóda ykkur øllum gledilegt
sumar!!! 
Knús og kossar frá okkur í veldi
baunanna 
B&G. P.s. Íslensku stafirnir eru ekki
á lyklabordinu hérna í skólanum hjá Berglindi, og jámm... enginn
frídagur í Danaveldinu í dag...
»
12.04.2007 20:08:17 / Berglind
Hæhæ...
Jæja þar sem Berglind gerir nánast ekkert annað hérna enn að
skrifa um annirnar hjá sér í skólanum, hvað varðar verkefnaskil og
próf, og þar með afsakar slakt gengi um skrif hérna (enda þegar
búið er að eyða heillögum tíma í lærdóm virðist lyklaborð og tölvan
almennt vera eins og eitthvað sem hún getur ekki hugsað sér að koma
í námunda við þar til illnauðsyn krefur þess aftur, þ.e.a.s. ný
verkefni, próf og slíkt). Er það líka kannski rétt hjá henni að
segja ykkur framgang... Well... prófið í morgun hjá henni gekk bara
ágætlega, þetta er í fyrsta skipti hjá þessum kennara sem hún er
mjög sátt og sammála kennaranum um einkunn en það kom ein 8 í
dag
Knús og kossar frá okkur í Áló,
og jámm... sko... þið megið alveg kommenta hjá okkur, hvenær sem er
(fengum yfir 50 heimsóknir eftir síðasta blogg en enginn kommentaði
)
»
07.04.2007 14:21:49 / Berglind
Hæhæ...
Jæja það er nánast ekki seinna vænna en að bjóða ykkur öllum
gleðilega páska og skrifa ÖRfáar línur hérna af okkur,
sérsaklega fyrir þá sem voru að lesa um hasarfréttina á mbl.is
héðan úr nætulífi Álaborgar (http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1263469).
En þið getið alveg verið rólega þar sem við skötuhjúin vorum ekkert
að þvælast þarna um miðja nótt, enda er Berglind í miðjum
próflestri, þar sem hún er að fara í próf strax eftir páska eða
þann 12. apríl nk. Já þetta blessaða nám hjá henni heldur áfram
sinni stífu prófdagskrá í gengum annirnar... En Gústi sem nýtur
þess að vera í páskafríi frá vinnunni sinni naut gærdagsins í mestu
rólegheitum undir teppi, ofan á sófanum með augun beind á
litakassan sem er í miðri stofunni (sjónvarpið auðvitað ) og því
engin hætta á að við höfum verið partur af þessu gengi eða heldur
nálægt því síðasliðna nótt. (Enda fréttir um að þetta hafi allt
verið eitthvað ,,utanbæjarpakk" eins og norðlendingar segja
stundum... sem voru í einhverjum slagsmálum hérna.)
Annars aðrar örstuttar fréttir af okkur þá höfum
við tekið þá ákvörðun að kíka ekki í svokallað sumarfrí heim til
Íslands í sumar, þar sem jú dvöl okkar í danaveldinu fer sennilega
að styttast ákváðum við því að eyða einu sumrinu hér í landi. En
Berglind mun kíkja í örstutta ferð heim á klakan fyrstu helgina í
maí þar sem Rósa vinkona hennar er að fara að gifta sig norðan
heiða. Gústi er síðan að gæla við þá hugmynd að athuga
kannski með að kíkja í örstutta helgarferð sennilega í
september til að fara á skytterý (það er að segja með þeim
fyrirvara að hann muni ná skotveiðiprófinu þann 11. maí nk. og að
danskt skotveiðileyfi gildi líka á ísl.). En hann, Eyfi og Diddi
nágrannar okkar ákváðu að skella sér á skotveiðinámskeið eftir
áramótin og eru þeir nú í óða önn að læra alla fugla, önnur dýr og
lög og reglugerðir til þess að geta hampað leyfið í byrjun maí.
Reyndar var það sennilega Diddi sem lét það falla út úr sér að
þetta væri nú nánast frekar eitthvað fuglaskoðunarnámskeið heldur
en eitthvað skotveiðidæmi (honum fannst greinilega eitthvað ofmikið
af því góða hversu smá atriðin með alla fuglanna eru mikil hérna
hjá baunanum).
Jæja ætli það sé ekki kominn tími til að hætta
þessum skriftum hérna og snúa sér að bóknum, þær fara víst ekkert
og maður getur víst ekki lært þetta án þess að veita þeim
athygli....
Þanngað til næst, knús og kossar héðan úr danaveldinu,
(sem er komið yfir í sumartímann, reyndar var það fyrir 2 vikum
síðan),
Berglind og Gústi
»
03.03.2007 20:19:27 / Berglind
Hæhæ...
Já hann Gústi gæi er orðinn árinu eldri þar sem hann er
orðinn 28 ára í dag og já engin formleg veisla, bara kökur fyrir
gesti og gangandi eins og maður segir stundum 
En afmælisbarnaspáinn á Mbl.is hljóðar álíka:
Afmælisbarn dagsins: Nú er lag að taka fram
skattskýrsluna - það er algjör tunglmyrkvi í meyjarmerkinu, sem
stýrir öllu sem snýr að skipulagningu, greiningu og því
óhjákvæmilega. Leyfðu þessum skugga stjarna að draga úr mótþróa
þínum við að komu reglu á líf þitt! Notfærðu þér ástandið og
skipulegðu þrjú atriði sem gætu fært þig nær uppfyllingu óska
þinna. 
Humm... hljómar hálf undarlega þar sem Gústi er nú með
frekar vel skipulagður með hlutina... 
En stjörnuspáin frá spámaður.is hljóðar svo...
Ekki flækja málin á nokkurn hátt varðandi ákvörðun sem þú stendur
jafnvel frammi fyrir hérna. Leið stjörnu þinnar liggur einungis upp
á við. Framtíð þín veit á gott og þér mun berast hjálp í einhverri
mynd næstu daga. Ef þú finnur fyrir vanmáttar eða minnimáttarkennd
vegna mistaka fortíðar ættir þú að snúa við blaðinu og halda
ótrauð/ur áfram.
Annars þá gekk allt í lagi í prófinu hjá Berglindi í gær, hún
fékk reyndar bara 7, en hún ætlaði sér hærra... en svona eru þessi
blessuðu munnlegupróf... hún hefur ávalt fengið mun hærri í
skriflegum svo svona er þetta bara...
Knús og kossar úr kökuflæðinu (og þið eruð velkomin ef þið hafið
áhuga ),
B&G.
»
27.02.2007 08:32:37 / Berglind
Hæhæ...
Allt á kafi í
snjó hérna... eða svo gott sem...
hann er reyndar að bráðna núna vegna hækkandi hitastigs...
en við höfum haft nokkur vandamál vegna hans en allt í góðu með
það, segjum ykkur frá því þegar Berglind er búin í prófinu sínu á
föstudaginn....
Enn alla vegna
rákumst við á þetta hérna: http://aalborgzoo.dk/struktur/nyheder/index.asp ,
þ.e.a.s. frétt um Gústa í Dýragarðinum í Álaborg. En þar sem Ragna
systir Berglindar var að deyja úr forvitni og bölvaði sjálfri sér
fyrir að hafa ekki verið svo góður nemandi í dönsku í gamladaga til
að skilja þessa frétt ákvað Berglind að hjálpa litlu systur sinni
með þýðinguna. Svo þið sem ekki eruð alveg að skilja þessa frétt þá
kemur hérna þýðingin (afsakið ef hún er ekki fullkomin).

Njótið vel

Nyheder 09.02.2007
Fréttir þann 09.02.2007
Ny orangutang til Aalborg
Zoo
En ny orangutang forventes at ankomme til
Aalborg Zoo natten mellem torsdag og fredag i denne uge og lukkes
efter planen ind i anlægget fredag
morgen mellem 8-9.
Nýr Orangúti til
Dýragarðsins í Álaborg
Nýjan orangúta er að vænta til dýragarðins í Álaborg, nóttina milli
fimmtudag og föstudag í þessari viku og mun verða settur inn í
búrið á föstudagsmorgun milli kl. 8-9.
Dyrepasser Kenneth Niemann og
dyrepasser/chauffør Tony Urban drog mandag morgen af sted mod
Frankrig, hvor de forventes at ankomme tirsdag eftermiddag
til Zooparc de Beauval i det centrale Frankrig. Hjemturen
påbegyndes torsdag morgen og der køres så nonstop mod
Danmark. To medarbejdere fra Beauval følger med i egen bil
for at aflevere orangutangen på forsvarlig
vis.
Dýrahirðirinn Kenneth Niemann og
dýrahriðirinn/bílstjórinn Tony Urban lögðu af stað á
mánudagsmorguninn til Frakklands, þar sem áætlað er að þeir
komi til Zooparc de Beauval í mið Frakklandi um
eftirmiðdaginn á þriðjudag. Heimferðin mun hefjast að morgni
fimmtudags og munu þeir keyra beint áfram til Danmerkur. Tveir
starfsmenn frá Beauval mun fylgja þeim á eigin bíl til að geta
hafhent Orangútan á ábyrgðarfullann hátt.
Den nye Borneo-orangutang er en
hun ved navn Gusti på 28 år. Gusti flyttes efter anbefaling
af Det Europæiske Avlsprogram, idet hun ikke har ynglet siden
1993. Da Aalborg Zoo sidste år modtog en ny han fra Borås og
gennem tiderne har ganske gode yngleresultater, har vi
påtaget os opgaven med at få Gusti til at yngle
igen.
Þessi nýi Borneo-orangúti er kvennkyns, 28 ára
gömul og er kölluð Gusti. Fluttningurinn á Gusta er gerður samkvæmt
ráðleggingum Evrópska Alvöruhópnum (veit ekki beint hvernig er hægt
að þýða þetta Det Europæiske Avlsprogram) þar sem hún hefur ekki
fjölgað sér síðan 1993. En á síðasta ári fékk dýragarðurinn í
Álaborg einn nýjan karlkyns Orangúta frá Borås og gegnum
tíðina hefur hann haft mjög auðvelt með að fjölga sér, höfum
við tekið það verkefni að okkur að fá Gusta til að fjölga sér á
ný.
Gusti er født i Jakarta i 1978 og blev håndopfostret.
Hun kom til Krefeld Zoo i Tyskland 28.08.1985, hvor hun fødte sin
hidtil eneste unge. Den 24.11.1993 kom hun til Beauval, hvor hun
har siddet sammen med en ældre han uden
yngleresultater.
Gústi er fætt í Jakarta í 1978 og var alin upp
við hjálparhönd. Hún kom í Krefeld Zoo í Þýskalandi þann
28.08.1985, þar sem hún átti sinn eina unga, hingað til. Þann
24.11.1993 kom hún til Beauval, þar sem hún býr saman með
eldri karlkynsdýri án þess að hafa fjölgað sér.
Gusti har tilsyneladende
forkærlighed for yngre hanner, og derfor satser
Avlssamarbejdet på, at den unge han fra Borås falder i hendes
smag.
Gústi hefur sýnilega áhuga á yngri
karldýrum, og þess vegna veðjar Alvöruhópurinn á að þessi
ungi karlapi frá Borås falli í vel í hennar
áliti.
Jæja... núna verður eflaust
skemmtilegt að heita Gústi í Áló 
Knús frá okkur í Áló, enda loksins er búið að
sanna það að knús sé hollt s.b. http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1255594
»
27.01.2007 13:18:27 / Berglind
Hæhæ... erum á lífi 
Bara stutt hérna... Berglind er búin í prófinu sínu (sem sagt var
búin á þriðjudaginn síðasta) og það gekk bara ljómandi vel enda
fékk hún 6... á hvolfi, sem sagt eitt stykki 9 fyrir annar
verkefnið sitt og er bara mjög ánægð með það og hann Gústi er
loksins kominn heim frá Írlandi (þar sem hann þurfti síðan að vinna
2 daga í Köben eftir að hafa verið þar áður enn hann kom heim til
Áló). En jæja... ætlum ekki að eyða öllum deginum í tölvunni í
dag... Berglind lofar að skrifa meira á mánudaginn... þar sem það
er engin afsökun fyrir því að ekki hafa tíma... hún er í annarfríi
og jámm... það er búið að yfirborðs þrífa íbúðina (sem sagt þetta
venjulega... ryksuga og skúra og slíkt).
Knús og kossar frá okkur í Áló þar til næst

Berglind og Gústi.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
Talning
Fyrir 1294 dögum
Brúðkaupsdagurinn okkar
|